Tyrkjaránið Árið 1627 lögðu 12 ræningjaskip af stað frá Alsír norður á bóginn í venjulega ránsferð, og komu fjögur þeirra til Íslands. Fyrsta skipið kom til Grindavíkur 20. júní. Þarna rændu Tyrkirnir fólki og tveimur kaupskipum. Síðan sigldu þeir að Seilunni á Áltanes í því skyni að hretaka þrjú skip, sem þar lágu. Næstu tvö skip, sem komu að landi, héldu til Austfjarða og lentu við Lón 5. júlí. Þar fóru Tyrkir í ránsferðir um nágrennið og allt til Fáskrúðsfjarðar.
Tyrkirnir rændu um allt land og líka í Vestmannaeyjum. Þaðan fóru 240 fangar, en talið er að þeir hefðu tekið hér 380 fanga og drepið 43. Sumt fólk sem var stolið þoldu illa loftslagið og þrældóminn og dó, fáeinir sluppu og komust aftur heim. Hugmynd Tyrkjana var að afla fjár með því að selja fangana lausa. Hræslan við Tyrkina var lengi viðloðandi á Íslandi.