Tyrkjaránið!!!!!! Árið 1627 fóru nokkur ræningjaskip af stað frá Alsír í Tyrklandi norður í ránsferðir. Fjögur skip komu til Íslands. Fyrsta kom að Grindavík og rændu þeir fólki og tveimur kaupskipum. Síðan fóru þeir að Seilunni á Álftanesi og hertóku þrjú skip. Næstu tvö skipin sem komu að landi fóru til Austfjarða og lentu við Lón. Þaðan fóru Tyrkjarnir í ránsferðir um nágrennið, alveg að Fáskrúðsfirði. Fjórða skipið kom svo til Vestmannaeyja og voru þar í tvo daga og rændu. Þegar þeir fóru frá Vestmannaeyjum voru þeir með um það bil 240 fanga en samt er sagt að þeir hafi tekið 380 fanga og drepið 43.Þrjú skip héldu til aftur til Alsír, þau skip voru einn mánuð á leiðinni. Þar var fókið selt. Talið er að 100 manns hafi fest sér múhameðstrú eða látið turnerast ein og það var kallað. Sumir þoldu illa þrældóminn og dóu. Sumir náðu að sleppa heim aftur. Tyrkjarnir vildu að Íslendingar keyptu fangana lausa. Danakonungur endaði að kaupa 35 fanga lausa árið 1636. Það komust 27 fangar til Íslands, 10 ár voru þá liðin síðan ránið var. Guðrún Símonadóttir var einn þekktasti fanginn sem keypt var laus úr Barbaríu. Sumir vildu fara í stríð við Tyrki en sumir voru hræddir svo þeir neituðu. Sem betur fer gerðist þetta ekki aftur og við erum vinir Tyrkja. Allavega ég. to edit.